hrparty is preposterous

 

beertasting

Ég fór í hrikalega bjórbúð í dag sem býður upp á fáránlegt úrval bjóra. Þar sem ég var eins og unglingur með bakpoka og geðveikt grunsamlegur þorði ég eki öðru en að kaupa mér eitthvað sjit þarna inni, til að líta ekki út fyrir að ég hefði verið að stela. Ég tók 3 flöskur af handahófi og hef nú eytt kvöldinu í tasting. Ég pósta hér með niðurstöðum til að vera eins og frændi, en ég er ekki jafn reyndur og frændi svo þetta er ekki af sama gæðaflokki

RIVER HORSE:
"Oatmeal milk stout" - 6.7 %
Þennan tók ég af rælni í hillunni, ég vissi sá ekki á honum hvað var í gangi en hann var hliðina á bláberjabjórnum svo ég gerði ráð fyrir að það væri eitthvað funky sjit. Þegar heim er komið tek ég eftir "oatmeal milk stout", sem hræðir mig því skv. minni enskukunnáttu þýðist það sem "hafragrautsbjór". En það þýðir ekki að gefast upp þegar á hólminn er komið svo ég bombaði honum í glas. Bjórinn er bleksvartur eins og kaffi. Fyrsti sopinn reif vel í og mér fannst eins og ég væri að taka eitthvað skot. Kannski vodka. eeen. svo lagaðist það bara. Bjórinn er hnausþykkur, eins og að drekka leðju en er bullandi ljúffengur með sterku bragði. Ekki til að þamba, eitt glas er svipað mettandi og 16" pizza. Mjög sáttur með hann, gef honum háa einkunn, en verður að vera undir réttum kringumstæðum, ekki til að þamba til að verða drönk og ná sér í tussur.

SHEERWOOD FOREST
"Maiden's blueberry ale" 5.46%
Massíft sterk ávaxtalykt af þessum (sennilega bláberja...) sem ég finn þó ég sé með hálfstíflað nef. Bragðið er auðvitað ekki jafn mikið stígvélaspark í rassgatið og af leðjunni, ógeðslega sætt og krúttlegt ávaxtabragð. Hann er sykursætur en fremur bragðdaufur, soldið light fílíngur í þessu. Kann ágætlega að meta hann, það væri ábyggilega hægt að nota hann til að verða fullur og ná sér í tussur, hann er mun auðdrekkanlegri en river horse, en ég hugsa að hann verði of sykursætur eftir 2-3. Jáá, ég kann bara ágætlega að metann.

HOFBRÄU HEFE WIZEN
"Munich Wheat Specialty" - þjóðverjum er sama um prósentuna
Fokk maður. Fáránlega skrítin lykt af þessu. Ég er töluvert stíflaðri en áðan en ég finn hana. Ég veit ekki. Ég finn eiginlega ekkert bragð af þessu. Mér finnst hann ekki vondur, en það er ekkert bragð, svo ekki er hann endilega góður heldur. Soldið eins og hland á litinn og gjörsamlega ómögulegt að sjá í gegnum, svo fullur af hveiti er hann, hann er samt með miklu miklu minna viscousity en leðjan í river horse. Mér finnst þessi bjór samt ekkert, eða mér finnst ekkert um hann, altsvo það er ekkert spes bragð í gangi. En ég kann ágætlega við það, þá er amk ekkert conflict, ég höndla conflict illa, vantar betri scheduler í mig. Ég er óákveðinn. Júú hann er góður svona eins og er í tjillið. Ég væri til í að vera með hann í bústaðnum hans nesa og tjilla eitthvað andskoti spikfeitt núna með krúinu. Þetta er þannig. Eftir vangefna steik af grillinu. En þeir eru allir þannig, allir til að tjilla með, en ekki verða maukaður og ná sér í tussu.

           

Loading mentions Retweet

Comments [4]

The effect of diffrent time value densities on Perfectly Dunkable Oreo Fudgees

Fyrsta vísindalega rannsóknin sem ég hef gert í Cornell var að koma út, ber hún nafnið "The effect of diffrent time value densities on Perfectly Dunkable Oreo Fudgees" og er birt í fyrsta skipti hér á posterious blogueinu. Rannsóknin fór fram þann 29. september (í dag) á 4 Oreo Fudgees kexkökum og miðaði hún að því að athuga áhrif mismunandi tímagilda við dunkun á Fudgees í mjólk. Mjólkin sem notuð var var 1% low fat og var henni hellt í mjög stórt mögg. 3 mismunandi tengudnir Fudgees kakna voru prófaðar, "Milk this way", "Dunkometer" og "Hold here | Dunk here". Allar eiga þessar tengundir að vera "Perfectly dunkable" skv. framleiðanda.

Rannsóknin fór þannig fram að 3 mismunandi tímagildi á dunkun voru athuguð, fyrst 10 sekúntna dunk, svo 20 sek dunk og þvínæst 15 sek dunk. Braðgæði og áferð þessara kexkakna voru svo borin saman við kexkökur sem ekki hafði verið dönkað.

Niðurstöðurnar voru mjög ótvíræðar: Kexkökur sem hefur verið dönkað eru mun betri heldur en kexkökur sem ekki hefur verið dönkað. Á milli mældra tímagilda var ómarktækur munur á 10 og 15 sek dunki en 20 sek dunk skilaði verri niðurstöðum, kökurnar voru of blautar og voru farnar að missa þéttleika eftir 20 sekúntna dunk. Optimal dunktími er því milli 10-15 sekúntur. Ljóst er að framleiðandi hefur lagt í mikla þróunarvinnu og bestun á dunki, 10 sek er mjög passlegur tími fyrir dunk og kexkökurnar taka mjög mikin vökva í sig á þeim tíma. Það lekur ekkert úr þeim þegar maður tekur þær upp úr mjólkinni og áferðin verður mun sætari og mýkri eftir dunk heldur en án dunks. Þó má renna stoðum að því að frasinn "perfectly dunkable" sé ekki uppfylltur þar sem kökurnar skilja eftir sig miklar leifar í mjólkinni þannig að hún verður of oreouð eftir að búið er að dunka 3 kökum í hana. Æskilegt væri að það væri engin mylsna í mjólkinni eftir dunk, upp að amk 10 kexkökum.

           

Loading mentions Retweet

Comments [4]

random fón pictures

Þarna má sjá nýju viftuna, sem er búin að sanna sig, útsýnið úr lærdómsspottinu mínu í duffield hall, atrium í duffield hall (tengibyggingin) ooog svo cornell mail logoið, alveg eins og annað mail logo.

       

Loading mentions Retweet

Comments [4]

ÞAÐ ER ÖLLUM BOÐIÐ Í PARTÝ HEIM TIL MÍN!!!

Blue Sky Day by Mo Lester  

HVAR ÞETTA LAG VERÐUR Í BOTNI Á RÍPÍT!"#!"#!!"#!!$!"$!!"#!!%!#!!"#!!

Loading mentions Retweet

Comments [6]

update for big O

Hér er update af nýju húsgögnunum, núna er ég orðinn helvíti sáttur með cribbið bara.

     

Loading mentions Retweet

Comments [3]

Sjá nýja layoutið í cribbinu

Hér má sjá nýja layoutið á cribinu sem ég endurraðaði í dag. Sjá líka mynd af homies á veggnum, og rörin sem búa til lætin fyrir utan gluggan með reglulegu millibili

     

Loading mentions Retweet

Comments [5]

kiddi vídjófluga


mínúta 3 er uppáhaldið mitt

Loading mentions Retweet

Comments [0]

Summer!

Sumarfestival a vego

Loading mentions Retweet

Comments [0]

Féll i stærdfrædi...

...ætladi hvort sem er ad verda logga

Loading mentions Retweet

Comments [0]

bubb rubb and lil' sis



the whisles go WOOO WOOO

Loading mentions Retweet

Comments [3]